Feministar senda forráðamönnum Wow Air pillu á vefnum Knuz.is þar sem fundið er að því að á vef Wow sé beinlínis verið að markaðssetja kvenfólk til að selja flugsæti til Amsterdam í Hollandi. Þar er vísað til umfjöllunar um hið alræmda Rauða hverfi í borginni. Það er ægilega langt seilst í túlkun að mati Fararheill en mun verra að umfjöllun Wow er bara þýðing á upplýsingum frá ferðamálaráði Amsterdam. Sem merkir að sá aðili sem á að gefa áhugasömum upplýsingar um áfangastaðinn hefur aldrei komið til Amsterdam.
Það er ekkert nema dónaskapur að bjóða ferðafólki upp á slíkar upplýsingar. Líkt og Fararheill hefur bent á varðandi auglýsingar Icelandair um Glasgow draga ferðamálaráð eingöngu upp snarbjarta mynd af borg og þjóð sama hversu mikinn kúk er þar að finna í ræsum. Og það eru mínusar í hverri einustu borg heimsins.
Hvers vegna finnst Wow Air og reyndar fleirum, rétt og fínt og eðlilegt að gefa viðskiptavinum sínum aðeins hálfa söguna? Hvers vegna velja þessi fyrirtæki, sem og fleiri, að gefa viðskiptavinum sínum takmarkaðar upplýsingar? Flokkast það sem góð þjónusta í markaðsheimum?
Fararheill bendir fólki á sinn eigin vegvísi um Amsterdam þar sem gott og slæmt kemur mætavel fram og það beint af kúnni. Við fjöllum ekki um borgir eða svæði sem við þekkjum ekki á eigin skinni og hver einasti ferðaþjónustuaðili sem það gerir ætti að sjá sóma sinn að gera eitthvað annað.







