Einkunnin fimm af tíu mögulegum er það besta sem viðskiptavinir Icelandair á heimsvísu gefa fyrirtækinu í einkunn fyrir þjónustu, verð og liðlegheit samkvæmt flugvefnum Skytrax sem heldur utan um slíkt. Sömuleiðis fær fyrirtækið ekki merkilega einkunn hjá sínu eigin starfsfólki samkvæmt fyrirtækjakönnun VR. Þar er þetta sögufræga batterí nánast eins aftarlega og hægt er í 71. sæti af stórfyrirtækum í landinu og fellur milli ára á sama tíma og aldrei hefur meira verið að gera og tugmilljónum króna eytt í ímyndarherferðir á fimm mínútna fresti.
Það telur Fararheill útskýra heilmargt því ekkert fyrirtæki er merkilegt án góðra starfsmanna og að þetta fyrirtæki, sem hefur bara haft rúm 75 ár til að heilla farþega og koma vel fram við starfsmenn, er fjarri því að ná því hafi það nokkurn tímann verið sérstakt markmið.
Má Fararheill náðarsamlegast benda forráðamönnum á að hætta ruglinu og koma fram við fólk eins og fólk? Kannski það gefi meiri byr undir vængi og kostar ekki neitt.







