Þ að kann að virðast undarlegt að dúndra milljörðum í nýtt lággjalda-lestarfyrirtæki á tímum faraldurs þegar ferðamenn eru almennt orðnir færri en jöklar á Suðurskautinu. Það er samt raunin í minnst þremur löndum Evrópu.

Príma fréttir fyrir ferðaþyrsta á Ítalíu, Spáni og í Tyrklandi. Í öllum þessum löndum hafa nú hafið starfsemi lestarfyrirtæki sem keyra á lággjaldamódelinu. Þú færð, með öðrum orðum, túrinn í ágætu yfirlæti fyrir slikk en án allra fríðinda. Enginn að bjóða þér mat um borð, enginn að bjóða þér dagblöð eða kaffi á leiðinni og sætin eru jú aðeins þrengri en gengur og gerist.

Sem er ekki vandamál fyrir þau okkar sem enn glíma ekki við brjósklos, vefjagigt eða eitthvað þaðan af verra. Ekki stórt vandamál fyrir hina veiku heldur.

Plúsinn er að nú er komist milli Barselóna og Madríd allt niður í 1400 krónur, Mílanó og Róm fyrir 1700 krónur eða Bursa og Istanbúl niður í 1600 kallinn. Fyrir daga lággjaldalesta kostaði túrinn milli Barsa og Madríd að lágmarki 3500 krónur, Mílanó til Rómar var næstum fimm þúsund kall að meðaltali og Bursa til Istanbúl skjagaði í sjö þúsund kallinn aðra leiðina. Auðvitað allt með ríkisreknum lestarfyrirtækjum.

Súperpríma fyrir þau okkar sem elska að ferðast en eiga súper skattsvikara á borð við forstjóra Samherja sem föður. Því færri seðlar í ferðalögin sjálf, því fleiri seðlar í okkur sjálf á þeim áfangastöðum sem við elskum 🙂