V iðurkenndu það bara. Þú hefur oft velt fyrir þér hvaða hlutverki þetta litla gat á glugganum í flugvélinni gegnir. En þú gleymir allaf að spyrja.

Þetta pínulitla gat á öllum gluggum farþegavéla. Hvað gerir það eiginlega?

Þetta pínulitla gat á öllum gluggum farþegavéla. Hvað gerir það eiginlega?

Gatið atarna virðist sannarlega kjánalegt. Og hvers vegna er það neðst á glugganum? Er þetta til að halda burt móðu eða hvað?

Á þessu eru afar eðlilegar skýringar. Slík göt finnast á öllum gluggum velflestra farþegavéla heimsins. Þetta eru bara loftgöt eða breather holes eins og það heitir á frummálinu. Þau gegna nokkuð mikilvægu öryggishlutverki með því að viðhalda réttum loftþrýstingi milli ytri gluggans og þess innri.

Þetta tengist þeim mikla þrýstingsmun á loftinu fyrir utan vélina og inni í farþegarýminu. Þrýstingsmun sem gerir farþegum kleift að anda vandræðalaust í 40 þúsund fetum.

Loftgatið tryggir að ef skemmdir verða á ytra byrði vélarinnar og þá sérstaklega glugga eða gluggum, sem er mjög ólíklegt en ekki útilokað, er það alltaf ytri glugginn sem tekur á sig mesta þrýstinginn. Jafnvel þó ytri glugginn gefi sig eiga farþegar samt sem áður að geta andað vandræðalaust.

Aukabónusinn er að gatið þurrkar líka upp raka sem getur myndast milli glugganna. Sem aftur tryggir að þú sérð út um gluggann frá flugtaki að lendingu.