Það er æði sjaldgæft að fara inn á ferðabókunarvefi hérlendis og finna þar flugferðir sem eru ódýrari en ódýrasta auglýsta verð. Það er þó hægt hjá Iceland Express þessa stundina.

Tilboðsfargjald í boði hjá Iceland Express til London á 16.900 krónur en ódýrari fargjöld finnast þó á bókunarvef fyrirtækisins
Fararheill tekur annars lagið að sér að lista upp nákvæmar dagsetningar á þeim tilboðsfargjöldum sem innlendir aðilar auglýsa en sem kunnugt er verður fólk eins og staðan er að leita slík tilboð uppi. Sem er kjánalegt í meira lagi en svona vilja menn hafa það.
Nú auglýsir Iceland Express ferðir til London á 16.900 krónur með sköttum og gjöldum. Leit á vef þeirra klukkan 12 sunnudaginn 14. október leiðir í ljós að ekkert slíkt fargjald er í boði fyrr en 9. desember. En næstu daga á eftir er það fargjald einnig í boði dagsetningarnar 10., 14., 15., 16., 17., 18., 21., 22. og 24. desember. Sömuleiðis er komist aðra leiðina til London á þessu verði fjölmargar dagsetningar í febrúar.
En merkilegast er þó að á fjórum dagsetningum er hægt að kaupa farið aðra leiðina á 14.900 krónur eða tvö þúsund ódýrara en tilboðið. Þau fargjöld finnast 25. janúar, 1. og 15. febrúar og 1. mars svo dæmi séu tekin.*
*Hafa skal í huga að fargjaldabreytingar eru örar og það sem finnst eina stundina er kannski ekki í boði þá næstu.







