Þær eru komnar til ára sinna yfirlýsingarnar um að allra, allra síðustu forvöð séu á að skoða Kúbu áður en Kaninn mætir með sitt hafurstask, McDonalds, Starbucks og óheftan kapítalisma og allt sem heillar fer fjandans til á augabragði.

Það er svo margt fallegt við Kúbu sem á ekkert skylt við Havana eða Varadero. Mynd Allan Hopkins

Það er svo margt fallegt við Kúbu sem á ekkert skylt við Havana eða Varadero. Mynd Allan Hopkins

En nú eru sannarlega allra síðustu forvöð og góðu heilli hægt að komast á fjandi góðu verði áður en feitlagnir Bandaríkjamenn reisa hér álver og spilavíti og nýta sér í þaula fátækt heimamanna.

Tilboðsvefurinn Travelbird er að bjóða áhugasömum upp á tíu og ellefu nátta Kúbuferðir frá Bretlandi frá hausti og fram á næsta ár á töluverðum afslætti frá almennu verði.

Um er að ræða tvíborga ferð. Annars vegar sjö nætur í vellystingum á Varadero með öllu inniföldu og svo þrjár eða fjórar nætur í Havana. Skoðunarferð um vesturhluta Kúbu er líka innifalin í verðinu.

Hvað kosta svo herlegheitin? Samkvæmt gengi dagsins fæst ferð þessi fyrir tvo saman á heilar 460 þúsund krónur frá Bretlandi. Smyrjum ofan á það flugi héðan til London og heim aftur að ferð lokinni og heildarkostnaður á parið gæti verið kringum 510 til 530 þúsund krónur alls.

Þér finnst það kannski í dýrari kantinum? En til samanburðar þá er ferðaskrifstofan Vita að bjóða vikuferð héðan til Kúbu með haustinu fyrir 560 þúsund krónur að lágmarki fyrir tvo saman.

Drífa sig. Tíminn bíður eftir engum 😉

Allt um málið hér.