Stórfyrirtækið Icelandair lætur ekki af bellibrögðum þegar kemur að hugsanlegum viðskiptavinum. Sá sem á leið á íslenska heimasíðu flugfélagsins þessa stundina sér meðfylgjandi skjáskot þar sem auglýst eru fargjöld, meðal annars til Toronto, Boston og New York, frá 14.900 krónum.

Ekki slæmur díll. 14900 vestur um haf með Icelandair!!!!

Ekki slæmur díll. 14900 vestur um haf með Icelandair!!!!

Því miður er hér um blekkingar einar að ræða og Fararheill hefur áður bent á svipaðar auglýsingar sem ekki reynist innistæða fyrir þegar allt kom til alls.

Hér er því miður ekki um það að ræða að fljúga til Boston, New York eða Toronto fyrir 14.900 krónur eins og skilja má af auglýsingunni. Sá haldið áfram á bókunarvef flugfélagsins sést glögglega að verðið á aðeins við um flug til evrópsku borganna. Mun dýrara að fljúga vestur til Bandaríkjanna eða Kanada.

Reyndar segja lög landsins að ólöglegt sé að auglýsa með þessum hætti og kveðið skýrt á um að viðskiptavinur skuli geta keypt vöru eða þjónustu á auglýstu verði. Nú væri hreint ágætt ef einhver léti á það reyna á skrifstofu Icelandair fyrir hádegi á morgun, þegar tilboðinu lýkur, hvort ekki fáist keypt flug til Boston, New York eða Toronto á 14.900 krónur. Ef ekki, er lítið mál að leggja fram kæru til Neytendastofu ef einhver hefur nennu til.