Hætt er við að þann mann setji fljótt hljóðan sem dettur í hug að bera saman fargjöld fram og aftur til New York með Icelandair annars vegar og Delta Airlines hins vegar.

Lengi vel var lítill verðmunur á flugi til New York en nú er öldin önnur.

Lengi vel var lítill verðmunur á flugi til New York en nú er öldin önnur.

Ekki er víst að allir viti það en Icelandair glímir við samkeppni til New York borgar yfir sumartímann og fram á haustið. Þar á ferð risaflugfélagið Delta. Fararheill hefur af og til gegnum tíðina borið saman fargjöld þessara tveggja og Icelandair þar jafnan komið vel út eða í versta falli bæði flugfélög verið að bjóða svipað verð. En ekki lengur.

Við gerðum lauslega úttekt á fargjöldum báðar leiðir milli Keflavíkur og New York með Icelandair og Delta. Við tókum stikkprufur á þremur dagsetningum í júlí, ágúst og september og þær allar valdar af handahófi. Verðmunurinn er sláandi mikill eins og meðfylgjandi tafla ber með sér. Þar sést til dæmis að langi einhvern að fara vestur um haf í byrjun júlí  í tvær vikur er næstum HELMINGSMUNUR á verði með Icelandair og Delta því bandaríska í hag. Það er geðveikur munur á nákvæmlega sama flugi og eini munurinn að aðeins ein taska ferðast frítt á almennings farrými Delta en tvær hjá Icelandair.

Hér skal tekið fram að um Main Cabin flokk Delta er að ræða í öllum tilvikum því lægstu fargjöld á svokölluðu Basic Economy reyndust uppseld á þessum dagsetningum. Hluti fargjalda Icelandair nær þó til allra ódýrasta farrýmis en annars til flugs á svokölluðu Economy Flex en íslenska flugfélagið er nú næstum með fleiri tegundir af economy farrými en það eru lönd í heiminum.

* Úttekt gerð kl. 20:45 þann 17. júní 2015 samtímis hjá báðum aðilum. Þurfi fólk að tékka inn tösku númer tvö hjá Delta kostar það aukalega rúmar 11 þúsund krónur.