Knattspyrnusamband Íslands hefur ekki orðið við beiðni Fararheill þess efnis að upplýsa hvað flugfélagið Icelandair greiðir sambandinu fyrir að stæra sig af því að vera „opinbert flugfélag íslenska landsliðsins.“

Svo virðist sem forsvarsmenn KSÍ horfi AÐEINS til peninga og sleppi öllu öðru þegar kemur að samningum. Mynd Icelandair

Icelandair, með sinn 22 ára meðalgamla snarmengandi flugflota auglýsir grimmt kringum leiki íslenska landsliðsins í knattspyrnu að það sé nú flugfélagið sem landsliðsmennirnir okkar velji þegar fljúga á erlendis til keppni.

Það auðvitað bull út í eitt. Landsliðsmennirnir velja það ekki heldur frammámenn hjá Knattspyrnusambandi Íslands og þeir fara frekar eftir feitustu bitunum fjárhagslega en að láta hluti eins og mengun og öryggi skipta meginmáli.

Mengun ætti að skipta hugsandi fólk máli því hnötturinn okkar hlýnar hratt og örugglega og öll kolefnismengun hefur mikil áhrif þar á. Fyrir forsvarsmenn KSÍ virðist engu skipta að velflestar vélar Wow Air eyða 48 prósent minna eldsneyti per sæti en algengustu vélar Icelandair. Skítt með svoleiðis prjál hugsa forsvarsmenn KSÍ.

Öryggi er auðvitað höfuðmál og engan þarf verkfræðing til að vita að 22 ára gamlar vélar eru ekki eins öruggar og fimm ára gamlar vélar. Honda Civic frá 1996 ekki jafn öruggur fararskjóti og Kia Rio frá árinu 2013. Himinn og haf milli tækninýjunga og framfara frá árinu 1996 til ársins 2013.

En ekki var það heldur aðalatriði KSÍ þegar gengið var til samninga við KSÍ. Það eina sem virðist hafa skipt máli var upphæðin á ávísuninni.