Kanada er allnokkuð á pari við Íslandið þegar kemur að rysjóttu veðurfari. En þar, ólíkt því sem gerist hér, birta þarlend flugfélög veðurviðvaranir tvo til þrjá daga fram í tímann ef líkur eru á að veðurfar hafi áhrif á flug til eða frá.

Air Canada varar viðskiptavini við hugsanlegum töfum vegna veðurs nokkra daga fram í tímann. Þeir bjóða fólki ennfremur að endurbóka ókeypis ef þeim líst ekki á blikuna. Toppþjónusta sem auðvitað finnst ekki hérlendis. Skjáskot
Fyrstu fregnirnar af nýafstaðnu verkfalli flugvirkja Icelandair birtust viðskiptavinum Icelandair tæplega sólarhring áður en það skall á. Svo vel var staðið að upplýsingagjöf vegna málsins að fólk sem millilenti í Leifsstöð á leið áfram til Evrópu og varð stopp vegna verkfalls komu af sömu fjöllum og Bjúgnakrækir. Enginn vissi af verkfalli.
Þetta nokkuð eftir bókinni hjá Icelandair. Þeir sem hafa nennu til að fletta gegnum dapran vef Samgöngustofu finna þar hundruð dæma um að Icelandair hefur aldrei lagst svo lágt að upplýsa farþega sína um hugsanlegar bætur eða aðra möguleika í þeim tilfellum sem flugi er frestað, aflýst eða því seinkar um fleiri klukkustundir. Samgöngustofa hefur ítrekað ávítað flugfélagið vegna þessa.
Að sama skapi er ekki við að búast að Icelandair eða Air Iceland Connect gefi eitthvað annað í skyn en að allt sé og verði með felldu hvað flug varðar. Jafnvel þó veðurspáin gefi annað til kynna.
Ofangreint ekki einskorðað við Icelandair. Wow Air og Primera Air sek um sömu viðskiptahætti. Berum það saman við algjöra toppþjónustu kanadíska flugfélagsins Air Canada. Flugfélagið tekur mið af veðurspám vel fram í tímann og birtir á vef sínum ef líkur þykja til að veður geti haft áhrif á flug þann og þann dag.
Ekki nóg með það heldur býður flugfélagið farþegum sem ekki líst á blikuna þann og þann daginn að ENDURBÓKA OG ÞAÐ FRÍTT á öðrum hentugum degi. Þetta gildir jafnvel þó aðeins sé einn sólarhringur í flug.
Þetta er toppþjónusta. Punktur. Eitthvað sem sumir hér heima gætu lært af til að standast harða samkeppni…







