Alltaf gaman að lesa pistla stríðsglæpamannsins Björns Bjarnasonar (ekki.) Nú vill gamlinginn að forsvarsmenn Icelandair sæki flugvirkjaþjónustu erlendis til að koma í veg fyrir að innlent vinnuafl geti sett flugfélaginu stól fyrir dyr með launakröfum.

Gamall pólitíkus telur sig hafa lausn á vanda Icelandair. Skipta út íslenskum flugvirkjum fyrir erlenda. Mynd Alþingi
Hafi einhvern grunað oggustund að pólitíkusar fyrri tíma hafi haft hag lands og þjóðar í forgrunni ætti sú skoðun að detta dauð niður lesi fólk nýjasta pistil Björns Bjarnasonar. Sá sat sem fastast á Alþingi Íslendinga um 20 ára skeið eða svo og var einn þeirra sem jánkaði þegar Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, ákvað að Ísland skyldi leggja Bandaríkjunum lið við ólöglega innrás í Írak. Innrás sem dæmd var ólögleg af SÞ enda stofnað til hennar með lygum.
Björn aldrei beðist afsökunar á þeirri ákvörðun sinni sem kostað hefur hundruð þúsunda lífið og skóp þvílíkan glundroða í Mið-Austurlöndum að ekki sér fyrir endann á. Kappinn of bissí að finna innri frið sennilega.
En Bjarnason bloggar og tjáir sig eins og eftirspurn sé eftir þó ekki hafi ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, enn séð ástæðu til að gefa karlinum sérstaka vinnu við pistlaskrif.
Bjarnason telur að forsvarsmenn Icelandair, sem eru allir sjálfstæðismenn, eigi að leita erlendis með þjónustu á öldnum flugflota sínum. Þannig megi koma í veg fyrir að gráðugir íslenskir flugvirkjar geti sífellt heimtað feitari laun og sporslur daginn út og inn.
„Innan Icelandair hljóta menn að velta fyrir sér hvort unnt sé að tryggja stöðugleika í rekstri á annan hátt en að treysta á þjónustu flugvirkja hér á landi. Sé sá kostur ekki skoðaður í alvöru er ekki allt gert til að treysta framtíðarstöðu félagsins í harðnandi samkeppni.“
Eðlilegt að heyra mann sem sat á þingi um tuttugu ára skeið hvetja stórfyrirtæki til að gefa skít í innlent vinnuafl og leita ódýrari fanga erlendis…







