Afskaplega lítið fer fyrir auglýsingum Keflavíkurflugvallar þess efnis að sá flugvöllur sé hreint ekki lengur sá besti eins og auglýst var grimmt 2009 og 2010. Þaðan af síður flagga Keflvíkingarnir því að samkvæmt nýjast lista Skytrax er Keflavík aðeins sjöundi besti flugvöllur heims með farþegafjölda undir fimm milljónum á ári.

Kannski eðlilegt enda sá árangur lítið til að hreykja sér hátt af. Þessi ákveðni listi er samkvæmt viðamikilli árlegri könnun Skytrax, sem eru óháðir aðilar, ólíkt því fyrirtæki sem veitti Keflavíkurvelli verðlaun sín á árum áður. Þar var um að ræða samtökin Airport Council og það voru starfsmenn Keflavíkurflugvallar sem sáu um að taka niður svörin. Afar traustvekjandi eða hitt þó heldur.

Ritstjórn Fararheill hefur lengi verið á þeirri skoðun að Keflavíkurflugvöllur sé ekki par merkilegur nema fyrir þá sem aðeins hafa flogið innanlands frá Reykjavíkurflugvelli. Í þeim samanburði hefur Keflavík vinninginn.

Listi Skytrax leiðir í ljós meðal annars að bestu veitingahúsin finnast á flugvellinum í Munchen. Hraðasta öryggisleitin er í Kastrup í Kaupmannahöfn og starfsmenn flugvallarins í Zurich eru fljótastir að afgreiða farangur ferðafólks.