Allt í heiminum er hverfult og þar með talin sú upphæð sem kortafyrirtækið þitt greiðir þér í bætur ef eitthvað bjátar á í ferðalaginu. Kreditkort, sem gefa út í samvinnu við Icelandair, Icelandair American Express kortin hefur einhliða lækkað um helming tjónabætur vegna tafa á flugi eða týnds farangurs.

Í einu vetfangi eru tryggingar almennra korta mun lægri en áður
Allmargir einstaklingar nota slík kort enda með þeim hægt að svokallaðan félagamiða ef verslað er duglega á ársgrundvelli en hann merkir að vinur eða vinkona ferðast frítt með þér erlendis fyrir ákveðna upphæð. Slíkt kort hafa einnig notið vinsælda hjá kylfingum því með slíku korti ferðast golfsettið frítt með hjá Icelandair.
Það er reyndar ekki hundrað prósent rétt að alhæfa í þessu tilfelli þar sem í tveimur tilfellum hækkar bótaupphæð en það á þó við um allra dýrasta kortið, Platinum, og sérstök viðskiptakort.
Hjá þorra almennings, sem notar premium kortin að mestu, lækkar nú sú fjárhæð sem Kreditkort greiða vegna tafa á flugi annars vegar úr 48 þúsund krónum í 24 þúsund krónur algjörlega einhliða og ekki fæst séð af fréttatilkynningu Kreditkorta að samsvarandi lækkun verði á árgjaldi kortsins.







