Merkilegt nokk tókst nýafstaðið hlutafjárútboð Icelandair merkilega vel og fyrirtækið situr nú að 23 milljörðum króna sem það átti ekki áður. Nú er aldeilis tíminn til að gera loks upp við þær þúsundir viðskiptavina sem hafa beðið eftir endurgreiðslu frá fyrirtækinu um margra mánaða skeið.

Forstjóri Icelandair sagði fyrirtækið klárt í allt síðasta haust. Það reyndist ekki rétt. Mynd RÚV

Fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki, íslensk og erlend, hvers forsvarsmenn bjuggust ekki við neinum alvarlegum skakkaföllum hafa lent í alvarlegum greiðsluvandræðum síðustu misserin. Engir peningar á bók til að dekka hugsanleg áföll og því reynist mörgum þeirra svo erfitt að endurgreiða þeim viðskiptavinum sem áttu bókað flug eða ferðir þegar kóróna gerði vart við sig.

Icelandair eitt þessara fyrirtækja sem hefur ítrekað hafnað endurgreiðslum og jafnvel gefið út inneignir þvert á óskir viðskiptavina. Allt til að eyða nú engum peningum enda fyrirtækið illa rekið um áraraðir og núverandi ástand aðeins birtingarmynd þess.

Þess vegna vekur furðu hversu vel gekk að selja fleiri hlutabréf í fyrirtækinu. Nema það finnist bóluefni gegn kóróna á allra næstu mánuðum mun Icelandair þurfa enn meira fjármagn strax næsta vor. Þá þynnast þeir út sem nú eyddu fjármunum í bréf. Algjörlega makalaus áhugi þegar haft er hugfast að forráðamenn Icelandair hafa ekki tekið góða ákvörðun um tíu ára skeið.

Alas, látum það liggja milli hluta. Aðalatriðið er að nú á Icelandair seðla á bók til að ENDURGREIÐA fólki sem beðið hefur MÁNUÐUM SAMAN. Fólk eins og þetta:

 

Og svo framvegis og svo framvegis…