Spekingar og fræðingar koma linnulaust fram í vafasömum fjölmiðlum landsins, vafasömum vegna þess að þeir eru flestir í eigu milljarðamæringa, og lýsa yfir hinum og þessum sannleikanum. En hvað ef þeir hafa allir rangt fyrir sér?

Forstjóri Icelandair gæti vel leikið aðalhlutverkið í American Psycho. Mynd Icelandair
Hvað ef hrapallegt hlutabréfagengi Icelandair sé ekki vegna þess að sérfræðingar fyrirtækisins hafi farið offari í áætlunum sínum eða að starfsfólk njóti, þvert á áætlanir, betri launa en ráð var fyrir gert? Heldur vegna þess að þjónusta er skert við nögl á handalausum manni?
Ekkert skal fullyrt hér en staðreyndin er að stjóri Icelandair er undir feitri pressu og hefur verið um hálfs árs skeið. Eigendurnir vilja jú seðla inn á bók og það eigi síðar en í gær.
Opinberlega hefur Icelandair selt 90 prósent af hótelum sínum. Opinberlega hefur Icelandair sagt upp
tugum starfsmanna síðustu mánuðina. Opinberlega hefur Icelandair flutt hluta reksturs síns til Albaníu eða annars slíks lands þar sem starfsfólk þykir heppið að fá hundrað kall á tímann. Opinberlega hefur þjónustustig Icelandair lækkað úr sjö stjörnum í fimm hjá flugvefnum Skytrax og samkvæmt sama vefmiðli var þjóðarflugfélag Íslands aðeins í 86. sætinu af öllum flugfélögum heims árið 2018.
Og svo þetta hér til hliðar. Flugfarþegi fær ekki farangur við komu til landsins. Flugfarþeganum lofað farangrinum upp úr klukkan tíu um morguninn. Tíu klukkustundum síðar er farangurinn enn ekki kominn til eigandans þrátt fyrir fjölda símtala og loforða Icelandair.
Hvað við hér vonum að Icelandair fari á hausinn mjög fljótlega. Þá opnast kannski tækifæri fyrir flugfélög sem láta sér raunverulega annt um farþega sína…







