Allir þessir fræðingar hjá Icelandair og engum dottið í hug að brjóta blað í sögu flugsins og koma sér þannig alþjóðlega á framfæri að allir muni eftir…

Hvað ef Icelandair yrði fyrsta flugfélag heims sem kolefnisjafnar allt sitt flug? Væri það ekki heimsfrétt með tilheyrandi plús fyrir félagið?
Hart í ári hjá lífeyrissjóðsflugfélaginu Icelandair. Þeirra helsti keppinautur horfinn inn í eilífðina og einu viðbrögð þessa gamla flugfélags er að henda sér aftur í feita einokunarprísa eins og flugfélagið varð frægt fyrir að endemum hér um áratugaskeið. Eða er einhver búinn að gleyma hundruð þúsund krónunum fyrir skitið flug fram og aftur til London eða Köben áður en samkeppni kom til?
Nú er það svo að velflest mengandi fyrirtæki heims þurfa að kaupa sér losunarheimildir til að fá ekki feitar milljónasektir fyrir mengun og viðbjóð. Velflest, það er að segja, nema flugfélög heimsins sem eru alls stikkfrí frá öllu Parísarsamkomulagi og öðrum yfirborðskenndum samþykktum um að bjarga afkomendum okkar frá algerri tortímingu.
Forráðamenn Icelandair voru um tíma leiðandi þegar farþegum var boðið upp á að kolefnisjafna flug sín með sérstakri greiðslu en flugfélagið hætti því enda vildu fáir greiða fimm þúsund kall aukalega til að skoppast heimshorna á milli án þess að það kæmi niður á loftslaginu.
En hvað ef Icelandair tæki nú upp á því að gera kolefnisjöfnun flugs að skyldu? Með öðrum orðum; fimm þúsund kall fyrir kolefnisjöfnun væri innifalið í öllum fargjöldum flugfélagsins?
Það virðist ekki gáfuleg hugmynd við fyrstu sýn nú þegar velflestir flugfarþegar kjósa með veskinu en ekki hausnum en við hér viss um að fyrsta flugfélagið til að leggja slíkt ofan á fargjöldin fengi feita og mikla auglýsingu í miðlum heimsins og sú auglýsing gæti barasta vel verið nægileg til að hugsanlegt tap af hærri fargjöldum gengi til baka.
Plús auðvitað að Icelandair færi í bækur Encyclopedia Brittannica og Wikipedia fyrir að vera fyrsta flugfélag heims sem heimtaði kolefnisjöfnun fyrir allt flug sitt. Það ekki slæm auglýsing á þessum síðustu og verstu. Eða myndir þú ekki greiða fimm þúsund kall aukalega svo að barnabörnin þín geti andað að þokkalega hreinu lofti í framtíðinni?







