Húha! Enn alls óljóst hvenær þotuframleiðandinn Boeing kemur Max-rellum sínum í loftið á ný eftir tvö alvarleg flugslys sem að öllum líkindum má rekja til sparnaðar í framleiðsluferlinu. Og nú berast fregnir af því að Dreamliner-vélar Boeing séu nú ekki alveg 100% öruggar heldur.

Dreamliner þota Boeing. Í ljós hefur komið að eldvarnarbúnaður þeirra þotu virkar ekki sem skyldi á köflum. Mynd JetStar
Sök sér að Krónan á Íslandi fækki starfsfólki það mikið að enginn getur sagt þér hvar finna má majónesið í hillunum. Og jafnvel í þeim undantekningartilfellum að þú finnir lausan starfsmann á vappi þá er sá hinn sami oft frá Albaníu og ypptir bara öxlum við spurningum.
Ók, slæm þjónusta er eitt og slíkt sjaldan dregið nokkurn til dauða svo vitað sé. En að draga saman segl þegar verið er að framleiða og setja saman farþegaþotur er töluvert annar hlutur.
Boeing verksmiðjurnar bandarísku eru rammsek um að taka allar þær hjáleiðir sem hægt er til að skera niður kostnað á sama tíma og forstjórar, yfirmenn og hlutafjáreigendur fá milljarða á milljarða ofan í arð. Um það má fræðast sæmilega hér.
Nú kemur í ljós að bæði lendingarbúnaður og eldvarnarbúnaður Dreamliner-véla Boeing er ekki alveg að gera sig og hafa flugmenn bæði kvartað og lent í vandræðum á flugi vegna þess.
Skólabókardæmi um hvernig fer fyrir flottum fyrirtækjum þegar arður til hluthafa skiptir meira máli en fagleg vinnubrögð og öryggi farþega.







