Tíu af fimmtán starfsmönnum flugvélaverksmiðju Boeing í Suður-Karólínufylki sem setur saman Dreamliner 787 vél félagsins dettur ekki í hug að fljúga með slíkri vél. Þá er fullyrt er að Boeing hafi við hönnun og framleiðslu Dreamliner gefið duglegan afslátt á gæðum til þess að ná að afhenda fyrstu vélarnar sem allra fyrst.

Glæsileg og salan gengur vel en ekki er allt með felldu hjá Boeing samkvæmt nýrri heimildarmynd. Mynd JetStar
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri heimildamynd Al Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar sem fjallar um ýmis þau vandræði sem Boeing lenti í við framleiðslu vélarinnar og hafa jafnvel enn ekki verið leyst. Dreamliner vélin fór mörgum árum fram úr áætlun og voru allar slíkar vélar kyrrsettar skömmu eftir afhendingu fyrstu vélanna þegar rafhlöður þeirra bráðnuðu í flugi vegna hita og elds.
Í myndinni er dregin upp dökk mynd af forráðamönnum sem ólíkt stjórnarmönnum Boeing á árum áðum var fyrst og fremst umhugað um hluthafa fyrirtækisins og að gera framleiðsluna á eins ódýran hátt og mögulegt var. Á móti virðist gæðastaðall Boeing hafa verið lækkaður verulega og jafnvel hundsaður í einhverjum tilfellum.
Fram kemur á vef Aviation Herald þar sem tekin eru saman alvarleg flugatvik víðs vegar í heiminum að 40 atvik tengd 787 vélinni hafa orðið á þeim tveimur árum sem vélin hefur verið í notkun. Þeirra alvarlegust brunar í rahlöðum sem þó virðist hafa tekist að ráða bót á.







