Það getur vart hljómað illa að sleppa viku úr annars köldum og dimmum desembermánuði á Íslandi og fá smá sól á kroppinn fyrir jólahátíðina. Heldur ekki amalegt að gera það á ensku ströndinni á Kanarí á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu og sleppa samt með 200 þúsund króna reikning fyrir par eða hjón.
Þannig hljómar ferðatilboð breskrar ferðaskrifstofu sem býður takmarkað magn af slíkum ferðum næstu mánuðina en allra lægst verð er á völdum dagsetningum í desember.
Verðmiðinn á þeirri ferð plús flug til og frá London og heim skjagar aðeins upp í tvo hundrað þúsund kalla sem verður að teljast verulega vel sloppið enda um 40% til 60% lægra verð en fæst héðan með ferðaskrifstofum á borð við Vita og Úrval Útsýn fyrir vikuferð í vetur.
Ferðin sjálf, flug og gisting, hjá hinni erlendu ferðaskrifstofu, hinni virtu Broadway Travel, kostar manninn 78.240 krónur miðað við gengi dagsins. Bætum við þann kostnað töskum fyrir 10 þúsund krónur og svo flugi með Wow Air út og heim en þegar þetta er skrifað fást bæði flug í desember niður í 30 þúsund krónur á haus eða rúm 60 þúsund alls.
Ergo: vikutúr í sól og sælu á langtum betra verði en býðst hér heima. Nánar hér en hafa skal í huga að hringja þarf í umrædda ferðaskrifstofu til að negla ferðina.








