Það ætti ekki að koma okkur á óvart en það gerir það í hvert skipti þegar flug með sjálfskipuðu „lággjaldaflugfélagi“ Wow Air reynist vera mun dýrari kostur en með hinu hefðbunda Icelandair.

Merkilegur verðmunur fyrir jólin til Toronto. Samsett mynd
Þetta er orðið dálítið algengt hjá Wow Air að hoppa upp fyrir annars dýr fargjöld Icelandair eins og við höfum oft fjallað um áður. Kannski var þetta hugmyndin í upphafi: koma því inn í haus á fólki að um lággjaldaflugfélag væri að ræða og hækka svo verð hægt og bítandi upp fyrir hefðbundin flugfélög svo lítið bæri á.
Það er allavega raunin ef þig langar að smella þér í verslunarferð til Toronto í Kanada fyrir næstu jól. Þangað fljúga bæði Icelandair og Wow Air og gera áfram í vetur og því hæg heimatök að framkvæma grófan verðsamanburð.
Við einbeitum okkur að flugi aðra leið út sökum þess að auglýst lægstu fargjöld beggja aðila taka til flugs aðra leiðina út. Þá finnum við þetta á vef Wow Air:
Hér sést ekkert flug út í desember undir 22.998 krónum að meðteknu bókunargjaldi sem ekki er innifalið á bókunarkorti Wow Air. Mikil hækkun á verði þegar nær dregur jólum eins og sjá má. Hér skal hafa í huga en ENGINN farangur er meðfylgjandi hjá Wow Air.
Kíkjum yfir á keppinautinn Icelandair og skoðum sama tímaramma. Þá finnum við þetta:

Samanburður leiðir víst í ljós að Wow Air býður jú lægra verð á átta dagsetningum. En áður en þú hristir höfuðið yfir kjánaskap ritstjórnar skaltu hafa í huga að við erum að tala um verslunarferð fyrir jólin og farþegar Icelandair mega hafa með sér TVÆR 23 kílóa töskur sem er innifalið í verðinu.
Ef þú ætlar með sama töskufjölda hjá Wow Air bætast tæplega tíu þúsund krónum ofan á auglýst verð. Sem þýðir til dæmis að 7. desember kostar flug með Wow Air tæplega fjögur þúsund krónum meira en hjá Icelandair miðað við sama töskufjölda hjá báðum. Ef við skoðum sunnudaginn 18. desember er fargjald Wow Air dýrara en hjá Icelandair jafnvel þó engum farangri hafi verið bætt við hjá hinum fyrrnefnda.
Ekki alltaf að marka þessa „lággjaldastimpla“ sem fyrirtæki skreyta sig með 😉







