Velflestar borgir, bæir, sveitir heimsins berjast um hylli ferðamanna því fræðin segja að þeir færi töluverða fjármuni inn í efnahagslífið á hverjum stað. Sumir sjá hlutina í öðru samhengi.

Á bökkum Amazon er bærinn Nazareth sem meinar nú ferðamönnum að heimsækja. Mynd TN
Íbúar smábæjarins Nazareth í Kólombíu hafa hins vegar fengið nóg af yfirgangi ferðamanna. Þeir eyða litlum peningum og hirða ekkert um siði og venjur heimamanna. Ferðafólk er ekki lengur velkomið til Nazareth.
Þetta er aldeilis einstakt svo vitað sé í veröldinni en rök bæjarbúa eru sterk. Ferðamennirnir koma í hópum og eyða litlum peningum í allra ódýrustu minjagripina ef þá það.
Þess utan hafa þeir slæm áhrif á börn bæjarbúa sem verða spennt fyrir tækniglingri; símum og myndavélum ferðamannanna. Í kjölfarið vilja börnin burt þegar þau verða eldri og hafna alfarið lífsstíl ættbálksins sem þorpið byggir.
Það kannski langsótt að loka á umheiminn til að halda þorpinu í byggð þó fordæmi séu fyrir að slíku. En meginatriðið að sjálfsögðu að virða siði og venjur á hverjum stað fyrir sig. Annað er virðingaleysi og heimska og slíkir ferðamenn eiga að sjálfsögðu að halda sig heima.
Það eru reyndar fleiri aðilar sem í löndum þar sem ferðamennska er stór hluti þjóðartekna sem samt reyna að loka af svæðum fyrir ferðamennsku. Kosta Ríka er að skoða slík svæði og í Dóminíska lýðveldinu íhuga stjórnvöld að loka alveg fyrir hótelbyggingar á suðurströnd landsins. Á Kúbu ætla stjórnvöld sömuleiðis ekki að fylla hvern kima og flóa af hótelum þó ekki skorti eftirspurn eftir lóðum frá erlendum stórfyrirtækjum.
Kannski eitthvað sem Íslendingar ættu að fara að skoða.







