Þann fyrsta júlí næstkomandi verður örlítið dýrara að hanga undir sólinni á Mallorca, Menorca og Ibiza því þá tekur gildi sérstakur túristaskattur sem hver og einn ferðalangur verður að greiða aukalega ofan á allt annað. 

Lítið eitt dýrara að hanga á Mallorca eftir 1. júlí.

Lítið eitt dýrara að hanga á Mallorca eftir 1. júlí.

Engin þörf að fara á taugum yfir þessu. Upphæðin sem um ræðir setur ekki gat á nein veski en hún mun nema einni evru á mann hvern dag sem dvalið er eða um 140 krónur miðað við meðalgengið.

Þetta þýðir einfaldlega að vikudvöl fjögurra manna fjölskyldu á Mallorca eða Ibiza hækkar um 3.920 krónur eða svo eða kringum 7.840 krónur fyrir tveggja vikna pakkann.

Ágætt að forvitnast um það hjá ferðaskrifstofum, ef leiðin liggur til eyjanna spænsku seinnipart sumars, hvort nýi skatturinn sé innifalinn í verðinu eður ei. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hjá öllum.