Þurfir þú að þvælast flugleiðis milli staða í Bandaríkjunum eru aðeins þrjú flugfélög sem þú ættir að líta til: Alaska Airlines, Southwest Airlines og JetBlue.

Enn heldur JetBlue toppsætinu sem besta flugfélag Bandaríkjanna.
Þessi þrjú flugfélög eru einu þarlendu flugfélögin sem lenda fyrir ofan núllið, sem sagt betri en verri, í árlegri könnun bandarísku neytendasamtakanna en sú könnun nær til rúmlega 70 þúsund einstaklinga. Restin og þar með talin öll risaflugfélög Bandaríkjanna ná varla pari fyrir þjónustu og verðlagningu.
Athyglisvert er einnig fyrir okkur Íslendinga að langneðst enn eitt árið hangir flugfélagið Spirit sem þykir bjóða svo lélega vöru að hana kaupa aðeins þeir sem ekkert hafa annað val. Hvers vegna það tengist okkur hér á Fróni kann einhver að spyrja. Jú, arkitektinn að hörmulegri flugþjónustu situr nú í stjórn flugfélags Skúla Mogensen og gefur „góð“ ráð.
Sömuleiðis er Delta, eina bandaríska flugfélagið sem hingað flýgur, ekki að gera gott mót. Miðlungs flugfélag í besta falli í öllu tilliti.







