Seint fær DV verðlaun fyrir blaðamennsku enda þar næsta engir lærðir blaðamenn af nokkru tagi. Sem útskýrir að stóru leyti hvers vegna blaðið fjallar um veikindi konu einnar á Kanarí en veitir því ekki athygli að konan sú og öll hennar fjölskylda býr hluta árs í helli!!!

Lengi vel fyrr á öldum bjuggu frumbyggjar Kanaríeyja í hellum. Nú hefur íslensk fjölskylda fetað í þau sporin…
Það er með þetta fornkveðna með tréð og skóginn. Vitiborið fólk sér skóginn fyrir trjánum en hinir sjá bara stöku tré á rangli.
Svo er um annars ágæta grein DV þar sem vitnað er í ritstjóra vefmiðilsins Trölli.is á Norðurlandi.
Ritstjórinn, Kristín Sigurjónsdóttir, segir þar frá miður góðri ferð á spænskt sjúkrahús á Kanarí þar sem hún komst að því að miður góðir ormar hefðu komið sér fyrir í iðrum hennar. Lesa má um þetta allt saman hér.
Það sem vakti athygli okkar hér, en nota bene ekki „blaðamanna” DV er þessi setning hér: „Kristín dvaldi á Kanaríeyjum í þrjá mánuði síðla árs 2019, í helli þeirra hjóna Kristínar og Gunnars Smára Helgasonar í fjöllunum á Kanarí.”
Í helli þeirra hjóna???
Hmmm. Það er ekkert minna en stórfrétt að íslensk fjölskylda eigi helli á Kanaríeyjum og búi þar eins og ekkert sé eðlilegra nokkra mánuði hvers árs. Nema að „blaðamenn” DV hafa ekkert fyrir að kafa dýpra ofan í hvers vegna Kristín hin sjúka og fjölskylda hennar keypti helli á Kanarí og búa þar sísona eins og við séum stödd árið 825 rétt fyrir landnám á Íslandi.
Ritstjórn Fararheill þætti vænt um að DV fari nú ofan í kjölinn á því hvers vegna íslensk fjölskylda getur keypt sér helli á Kanarí, hvers vegna það sé góð hugmynd og hver vakti hellinn þegar familían er heima á Fróni. Por favor…







