Við hér elskum Kanada og erum líklega ekki ein um það. Hreint dásamlegt að þvælast um landið en gallinn auðvitað sá að það er allt of stórt og víðfeðmt til að skoða og sjá allt sem merkilegt telst. Eða hvað?

Ekki amalegt að sjá dásemdir Kanada líða hjá beint úr rúminu 😉

Jú, það verður að viðurkennast að það er fjári erfitt að flakka um Kanada þvert og endilangt án þess að vinna í Víkingalottó og eiga tvö til þrjú ár aflögu til flakksins. Vegalengdir hreint ægilegar og til marks um nægir að nefna að ferðamálayfirvöld í landinu mæla með tveimur vikum AÐ LÁGMARKI sé ætlunin að keyra frá austurströndinni, Toronto eða Montreal, og alla leið yfir til Vancouver á vesturströndinni. Í því ferðaplani EKKI gert ráð fyrir löngu stoppi neins staðar nema yfir nótt.

En dreymi einhvern um bíltúr um Kanada vill það gleymast að bílstjórinn verður ekki aðeins miklu þreyttari en aðrir farþegar heldur og getur sá ekki slegið sér upp sísona á einhverjum áfangastaðnum ef svo ber undir. Þunnur bílstjóri fer ekki langa leið vandræðalaust.

En hvað ef það væri virkilega til leið til að skoða drjúgan hluta Kanada án þess að blása nein ósköp úr nös og án þess að ganga duglega á fjölskylduauðinn? Hugsanleg leið til þess er að flakka um landið með lest. Ekki bara í næsta sæti á almenningsfarrými heldur í þínum eigin svefnklefa.

Það alls óvitlaus hugmynd ef tveir til fjórir eru saman um hituna. Lestarklefi býður upp á næði eftir óskum, óskert útsýni þegar eitthvað markvert rennur hjá og hægt að leggja sig og hvílast hvenær sem fólk óskar. Fyrir utan hvað það er alltaf sexí að sofa í lest.

Þá er heldur ekki leiðinlegt ef lestarmiðinn er á kjarakjörum 🙂 Það er nefninlega raunin þegar þetta er skrifað. Ferðaskrifstofan Railbookers, sem sérhæfir sig í lestarferðum um heiminn á sem bestum kjörum, er þessa stundina að selja pakkaferðir með lestum Kanada á vænum afslætti. Þar á meðal afsláttarkjör á sérklefum í lengri ferðum.

Þar má til dæmis finna nótt í svefnklefa með mat inniföldum allt niður í rúmar þrettán þúsund krónur miðað við einn eða tvo saman. Það brilljant verð og ef þér finnst það ekki þá biðjum við þig að reyna að finna sæmilega gistingu í borgum Kanada eina nótt fyrir þá upphæð.

Tíminn sannarlega núna ef þig einhvern tímann dreymt um risarúnt um Kanada 🙂 Allt um málið hér.