Tíðindi

Írar lækka alla skatta á ferðamenn

  11/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Írland varð rétt í þessu enn ódýrari áfangastaður fyrir ferðamenn en verið hefur því stjórnvöld þar í landi hafa fellt niður umdeildan ferðamannaskatt tímabundið í þeirri von að fleiri sjái sér fært að koma í heimsókn.

Hafa allir ferðamenn til landsins greitt sérstakan ferðaskatt um tíma og nam sú upphæð um 600 krónum á hvern einstakling.

Verður þessi skattur felldur niður og ekki nóg með það heldur lækka stjórnvöld tekjuskatt á hótel, veitingahús, kvikmyndahús og ýmsa aðra merkilega staði í þeirri von að ferðamenn láti frekar tilleiðast að fara til Írlands en annarra staða.

Írland er einn þriggja staða sem Fararheill mælir sérstaklega með þetta árið sökum fársjúkrar íslenskrar krónu en verðlag á Írlandi hefur lækkað töluvert og þangað er stutt að fara. Hinir eru Lissabon og Tallinn.