Fátt í lífinu er óhuggulegra en lenda í alvarlegu flugatviki þar sem bæn og von er á stundum það eina sem hver einstaklingur getur gert til hjálpar.
Allnokkrir erlendir vefmiðlar halda utan um alvarlegri flugatvik dag hvern og gildir þá einu hvort um er að ræða vélarbilanir eða slys á fólki.
Kemur það mörgum sennilega á óvart að hvern einasta dag ársins verða milli fimm og fimmtán alvarlegri atvik í flugi víðs vegar í heiminum. Sem betur fer endar það yfirleitt afskaplega vel.
Sem dæmi um hversu mikið er um slík atvik er hér að neðan skráð atvik í dag 10. maí sem þó er aðeins hálfnaður vestanhafs en nær reyndar til atvika sem áttu sér stað í gær líka.
- Ibería nálægt Madrid. Framrúðubrot
- Air Canada nálægt Vancouver. Hreyfill drap á sér í flugi
- Delta Airlines nálægt Atlanta. Fuglar í hreyflana
- Continental nálægt New Orleans. Fuglar í hreyflana
- United Airlines nálægt Kirksville. Mikil ókyrrð slasar flugþjón.
- Austrian nálægt Kraká. Klósettbilun.
- Nostrum nálægt Nice. Skyndilega hætt við flugtak þar sem önnur vél var á flugbrautinni
- Red Wings nálægt Samara. Hjólabúnaður dróst ekki upp.
- Quantas nálægt Singapore. Vélarbilun í flugi.
- American Airlines nálægt San Francisco. Ólátabelgur um borð.






