Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, fullyrðir í viðtali við erlendan vefmiðil að flugfélagið Iceland Express sé lágfargjaldaflugfélag sem geri allt sem það mögulega geti til að halda verðum lágum.
Var Matthías þar að tjá sig við vefmiðilinn Cheapflights.com um þá ákvörðun flugfélagsins að takmarka gjaldtöku vegna debit- og kreditkorta en þar stendur Iceland Express sig betur en flest önnur flugfélög sem mörg hver taka frá þúsund krónum og alveg upp í tvö þúsund krónur aukalega fyrir það eitt að bóka fargjald á netinu. Er það vel og ber að hæla Iceland Express fyrir það.
En það sem vakti athygli ritstjórnar Fararheill var yfirlýsing forstjórans að flugfélagið sé lágfargjaldaflugfélag.
Skoðum það nánar með nokkrum dæmum og hafa skal í huga að hér eru ódýrustu verðin hverju sinni frá Keflavík:
- Flug til Alicante og til baka frá 12. júlí til 30. júlí fæst ódýrast á 70.031 krónu.
- Flug til London og til baka frá 15. maí til 27. maí fæst ódýrast á 42.747 krónur
- Flug til Berlínar og til baka frá 12. sept. til 26. sept. fæst ódýrast á 55.579 krónur.
Lítum svo á verð tveggja vinsælustu lágfargjaldaflugfélaga Evrópu til samanburðar miðað við gengi dagsins. Byrjun á Ryanair frá London:
- Flug til Alicante og til baka frá 7. júlí til 20. júlí fæst ódýrast á 24.175 krónur.
- Flug til Frankfurt og til baka frá 7. sept. til 18. sept fæst ódýrast á 10.414 krónur.
- Flug til Tenerife og tilbaka frá 18. maí til 28. maí fæst ódýrast á 16.366 krónur.
Annað vinsælt lágfargjaldaflugfélag sem þó er í dýrari kantinum í þeim flokki er easyJet. Þrjú verð þeirra frá London eru:
- Flug til Alicante og til baka frá 9. júlí til 20. júlí fæst ódýrast á 24.553 krónur
- Flug til Lissabon og til baka frá 9. sept. til 20. sept. fæst ódýrast á 13.578 krónur.
- Flug til Rómar og til baka frá 20. maí til 30. maí fæst ódýrast á 26.600 krónur.
Vitaskuld er ekki alveg saman að jafna við slíkan samanburð en hann gefur þó hugmynd um hvað er raunverulega lágfargjaldsflugfélög og hver ekki þó hafa verði í huga að bæði Ryanair og easyJet klína á ýmsum aukagjöldum eins og sérgjöld fyrir töskur og svo framvegis.
Aðalverðmunur flugfélaga liggur þó í eldsneytiskostnaði. Flugtími frá London til Tenerife er ekki mikið styttri en flug frá Keflavík til Alicante. Verðmunurinn reynist þó vera 53.665 krónur milli Ryanair og Iceland Express.






