Töluverður hópur íslenskra nema erlendis hafa tekið sig saman um að fljúga ekki framar með flugfélaginu Iceland Express. Ástæðan að verulegar tafir er meira regla en undantekning og ekki síður þykir þjónustu flugfélagsins verulega ábótavant.
Eru þetta nokkur tíðindi ekki síst þar sem fargjöld Iceland Express eru oft á tíðum lægri en eina samkeppnisaðilans sem reglulega flýgur hingað til lands allt árið.
Eru nemarnir sem um ræðir frá Svíþjóð og Danmörku og segir einn þeirra í samtali við ritstjórn Fararheill að allflestir í hópnum hafi lent í því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að miklar tafir verði á flugi félagsins.
Fyrir utan almennan pirring og þreytu vegna slíks séu margir með börn á ferðum sínum og ekki lengur sé á hættandi að bíða á flugvöllum jafnvel klukkustundum saman án upplýsinga, aðstoðar og jafnvel án þess að fá vott né þurrt.
Það er einmitt slík reynsla sem hagfræðingurinn Már Wolfgang Mixa lýsir í pistli á bloggi sínu í dag en þar kallar hann flug með Iceland Express fyrir viku síðan hreina óvissuferð.
Það sem átti að vera 40 mínútna seinkun reyndist svo vera 4 klukkustunda bið áður en farþegum var boðið upp á samloku og drykk þegar klukkan var að nálgast þrjú um nótt. Klukkustund síðar var aftur tilkynnt brottför en viti menn; það reyndist plat og þvert á móti var verið að afferma vélina.
Þurftu farþegar að sækja töskur sínar og þá loks bauðst fólki að fara á hótel í grennd. Þar fengu farþegar að borða og fjögurra klukkustunda svefn áður en loks var flogið heim. Reyndist biðin tólf klukkustundir og allan þann tíma fengu farþegar enga aðstoð frá flugfélaginu eða starfsmönnum þess.






