Norður-Írar eru strax orðnir spenntir. Ekki aðeins að frá næsta vetri komist þeir rakleiðis beint til Íslands fyrir klink ef þeim sýnist svo heldur ekki síður að taka móti eyðsluklónum frá Íslandi. Dágóð búbót vona þeir.

Heita má pottþétt að einhverjir Íslendingar fylli skjóður sínar og poka af vörum í Belfast á Írlandi næstu misserin. Mynd William Murphy

Heita má pottþétt að einhverjir Íslendingar fylli skjóður sínar og poka af vörum í Belfast á Írlandi næstu misserin. Mynd William Murphy

Þetta kemur gróflega fram í svari ferðamálaráðs Norður Írlands við fyrirspurn Belfast Telegraph í kjölfar fregna þess efnis að easyJet muni bjóða beint flug milli Keflavíkur og Belfast strax næsta vetur. Nákvæmlega var haft eftir talsmanni þess ráðs að í Belfast væri menn ávallt spenntir að taka móti nýjum hópum fólks sem þekkt er fyrir mikla eyðslu í gistingu, mat og verslunum.

Sem eru orð að sönnu ekki satt. Enginn maxar kreditkortin eins og Íslendingar erlendis og ósköp eðlilegt líka með tilliti til fákeppni og þúsundfaldrar álagningar á öllu hér í verslunum.

Fararheill veit líka til þess af eigin reynslu að það er enn í dag talað um verslunarferðir Íslendinga til Dublin hér fyrir um fimmtán til tuttugu árum síðan. Ófáir verslunareigendur hafa gleymt þeirri gósentíð þó liðinn sé þessi tími. Og verslunareigendur í Belfast hafa efalaust heyrt ávinning af þessu á sínum tíma enda þótti eyðsla Íslendinganna nógu mikil til að verðskulda greinar í írskum dagblöðum.