Eins og við höfum áður sagt frá ítrekað eru erlendar ferðaskrifstofur flestar ekkert að klípa nein fimm, tíu prósent af ferðum sem ekki seljast upp. Aldeilis ekki heldur er veittur ríflegur afsláttur svo ekki þurfi að senda vélar tómar hingað og þangað.
Nú er til dæmis hægt að dvelja á æðislegri eyju í Tælandi í haust og fljúga frá Bretlandi fyrir rétt rúmar 180 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Það er hvorki meira né minna en eitt hundrað þúsund króna afsláttur frá eðlilegu verði en auðvitað vantar kostnað við flug til Englands og heim aftur.
Ferðaskrifstofan sem þetta býður er hin velþekkta og virta Kuoni en ferðin atarna býðst í september, október eða nóvember. Flogið er til Bangkok og þaðan beint til hinnar dásamlegu eyjar Koh Samui sem margir Íslendingar ættu að þekkja af góðu einu. Þar gist á fjögurra stjörnu hótel með morgunverði í átta nætur áður en haldið er heim á ný. Ferðir til og frá flugvelli vitaskuld innifaldar.
Vissulega heldur stutt fyrir svo langa ferð en Fararheill getur vottað þrjú hundruð prósent að Tæland er þess virði. Ólíkt slagorðum annarra ríkja þá er þetta raunverulega land hinna þúsund brosa og það í viðbót við allt annað sem hér er yndislegt. Verðlag er grín og hægt að sníða eðalfín jakkaföt á kallinn niður í 30 þúsund krónur eða svo af fagmönnum. Þá er líka hægt að framlengja umrædda ferð en þá auðvitað greiða aukalega fyrir það.
Svo er líka hægt að versla í London á heimleið eða útleið og láta nægja að njóta og elska meðan dvalið er í Tælandi. Það er óvitlaus hugmynd finnst okkur. En auðvitað er líka hægt að dunda sér í Antalya fyrir svipaðan pening.
Allt um málið hér en hafa skal í huga að ekki eru ýkja mörg sæti í boði.








