Flest erum við líklega orðin dálítið langþreytt á blautu og köldu íslensku sumri þetta árið og fátt meira spennandi en rjúka af stað út í heim þar sem vitað er að sól og hiti gera sig heimakomin daginn út og inn. En þessi dægrin þurfum við ekki að fara svo ýkja langt til að komast í súperveður.

Íbúar í þessum norska bæ njóta meiri sólar og hita en flestir við Miðjarðarhafið þessi dægrin. Mynd Martha De Jong Lantink
Það er nefninlega svo merkilegt að það er meiri hiti og sól nú og næstu dagana í norska bænum Harstad langt til norðurs í landinu en á flestum stöðum við Miðjarðarhafið. Þegar þetta er skrifað státar Harstad af 31 stiga hita en í Barcelona er skítakuldi til samanburðar eða aðeins 25 stig.
Þar reyndar lýkur samanburði þessara tveggja staða en Harstad helst til lítill og ómerkilegur til að trekkja í tonnavís. En norsk náttúra er lítt síðri en sú íslenska ef útivist er á dagskránni eins og þeir þekkja sem þvælst hafa náttúrulega um Noreg.
Harstad er ekki eini bærinn sem nýtur góðs af hitabylgju hjá frændþjóðinni. Hitamet í Tromsö gætu fallið í dag eða á morgun en gamla metið er 30,2 gráður.
Við þurfum sem sagt ekki að fljúga neitt í fimm stundir til Spánar til að komast í feitt og heitt. Tveggja stunda flug til Noregs dugar til.









