Skip to main content

Svo er fólki spurn hvers vegna ferðamönnum til landsins fer allt í einu fækkandi? Víst hefur dýrtíð á klakanum eitthvað með það að gera en sorglega döpur þjónusta íslensku flugfélaganna er klárlega ein orsök…

Við hér höfum gagnrýnt arfaslaka þjónustu íslensku flugfélaganna um langa hríð og oft fengið bágt fyrir.

Landinn er ekkert hrifinn af því að sett sé út á sitt uppáhalds og í tilvikum er fólk hreint og beint vitlaust. Eða hvernig er annars hægt að útskýra að Byko hlaut hæstu einkunn í svokallaðri Ánægjuvog á sama tíma og fyrirtækið var grunað um feit og og alvarleg samkeppnisbrot? Sumt fólk er bara fífl.

Að því sögðu þá látum við meðfylgjandi skjáskot segja sína sögu. Fimm samfelld ár af húrrandi uppsveiflu í ferðabransanum með tilheyrandi hagnaði fyrir þá sem vita hvað þeir eru að gera.

En hefur þjónustuverið hjá Icelandair fengið einn seðil til að bæta þjónustuna þennan tíma? Svarið við því er einfalt neibbs. Miklu mikilvægara að henda út milljörðum í arðgreiðslur en að koma fram við viðskiptavini eins og fólk.