Gúgglaðu fjögurra stjörnu gistingu hér á Íslandi. Ef heppnin er með þér finnurðu herbergi kringum 20 þúsund kall utan annatíma. Gúgglaðu fimm stjörnu gistingu í Mumbai á Indlandi á annatíma og þú getur sloppið með að punga út þrettán þúsund krónum.
Nú þegar bæði Icelandair og Wow Air eru að kynna nýjar flugleiðir til Indlands á næsta vetri er óhætt að skoða hvað Indverjinn er að bjóða okkur Frónbúum. Við kíktum að gamni á Mumbai, áður Bombay, en þangað flýgur Wow Air beint næsta vetur og Icelandair líklega í kjölfarið.
Svo hvað kostar að gista þar í vellystingum?











