Við finnum ekki staf um þetta á neinum stórum fjölmiðli en risafyrirtækið Icelandair er að lækka þjónustustig sitt verulega.

Forstjóri og stjórnarformaður Icelandair. Milljarða króna hagnaður fjarri því nóg. Þeir vilja fleiri seðla í lommen.

Flugfélagið kallar þetta „samræmingu á farangursheimild“ sem er flott lína fyrir lélegri þjónustu en verið hefur. Markaðsfólk flugfélagsins lagt haus í bleyti mánuðum saman til að detta ofan á þetta. Auðvitað er ekki orð um þetta á helstu miðlum þar sem auglýsingapeningar Icelandair þykja móðins og hvers vegna að segja sannleikann þegar hægt er að græða miklu meira á að segja ekki frá hlutum.

Frá og með 17. janúar á því herrans ári 2017 geta viðskiptavinir Icelandair, aðrir en þeir ríku með gullkortin sem geymdu fjármuni sína á Panama, ekki ferðast með tvær töskur lengur vestur um haf án þess að greiða feitan skilding fyrir. Flugfélagið, sama flugfélag og hefur hagnast um fleiri milljarða króna á síðustu árum, ætlar eftirleiðis að krefja viðskiptavini um nokkra þúsundkalla í viðbót sé þörf á tösku númer tvö frá Bandaríkjunum eða Kanada. Eftirleiðis er það ein taska á kjaft og ekki orð um það meir.

Við þetta eru plúsar og mínusar. Plúsinn að mati Fararheill sá að þörfin á tveimur 23 kílóa töskum vestur um haf fyrir Meðaljón Jónsson eða Meðaljónínu Jónsdóttur er engin. Hver er að versla varning upp á rúm 50 kíló í hvert sinn sem skottast er í vesturátt yfir hafið? Ekki nokkur lifandi maður nema sá sem ætlar að taka Volkswagen bjöllu með sér til landsins.

Annar plús sá að minni þyngd um borð þýðir minni útblástur gróðurhúsalofttegunda og ekki veitir af enda Icelandair að keyra einhvern elsta flugvélaflota heims.

Á hinn bóginn þá er þetta að forminu til veruleg skerðing á þjónustu. Með tilliti til að ein taska fram og aftur vestur um haf hjá lággjaldaflugfélögum kostar að lágmarki tíu þúsund krónur ættu viðskiptavinir að geta gengið að því vísu að öll fargjöld Icelandair vestur um haf lækki sem því nemur að minnsta kosti.

Líkurnar á því? Núll prósent eða svo. Icelandair þarf jú að greiða hluthöfum sínum og helst með feitari tékka ár frá ári svo stjórinn fái ekki reisupassa 😉