„Þrátt fyrir að Wow air bjóði upp á lág verð og spari, þar sem hægt er að spara, bætir Skúli við að það séu tveir hlutir þar sem að Wow air kæmi ekki til með að spara; í öryggi og þjónustu.“

Skúli Mogensen fyrir miðju í góðu geimi. Mynd Isavia
Æ hvað það er leiðinlegt hvað „alvarlegir“ fjölmiðlar í landinu verða yfirborðskenndari með hverjum deginum. Svo eru stjórnendur hissa á að enginn taki þá alvarlega og lestur fari minnkandi. Góðu heilli er fólk ekki fífl.
Ofangreind tilvitnun er á vef Viðskiptablaðsins og það þýtt og staðfært, illa, úr viðtali Skúla Mogensen eiganda Wow Air, við Business Insider í Bretlandi.
Hvernig vitum við að Viðskiptablaðið er í ruglinu? Jú, þrátt fyrir fögur orð eigandans hríðfellur gengi Wow Air á vefmiðlum sem mæla ánægju fólks með flugferðir og Wow Air er sömuleiðis að fá svo mikið af neikvæðum kommentum á samfélagsmiðlum að þeir LOKUÐU fyrir gagnrýnisraddir fólks á Facebook. Það er margra mánaða bið eftir aðstoð flugfélagsins ef eitthvað bjátar á hjá farþegum þess og eins og Fararheill hefur bent á er vel hægt að færa rök fyrir að Wow Air sé ekki lággjaldaflugfélag.
Í stað þess að vitna í erlenda miðla þar sem Skúli gefur sín drottningarviðtöl og lofar fögru væri kannski ráð, til að fá almenning til að treysta blaðamönnum betur, að setja upp gagnrýnisgleraugun. Þið vitið, þessi sem voru ekki á neinum blaðamanni í aðdraganda bankahrunsins 2008 😉







