Þ að hefur vart farið framhjá nokkrum að velflest flugfélög heimta nú sérstakt farangursgjald í ofanálag við flugfargjaldið sjálft. Það er því full ástæða til að pakka betur en nokkru sinni fyrr.

Ef bandarísk flugfreyja getur pakkað til tíu daga í eina litla tösku þá getur þú það líka
Þó ekki sé farangursgjald per se að fara að setja neinn á hausinn er um nokkurn kostnað að ræða. Lágmarksgjald fyrir töskuskrifli hjá þeim ódýrustu kostar vart undir þrjú þúsund krónum og víða hærra en það. Þegar fargjaldið sjálft kostar kannski ekki nema tíu til fimmtán þúsund gefur augaleið að þetta er nokkur kostnaðarauki.
Það er til lausn á þessu vandamáli upp að vissu marki eins og blaðamenn New York Times komust að raun um þegar þeir heimsóttu vel siglda flugfreyju og forvitnuðust um hvernig hún færi að því að pakka öllu sínu í eina litla tösku. Umrædd flugfreyja var heldur ekki að fljúga neinar dagsferðir heldur þarf stundum að hafa föt til skiptanna í allt að tíu daga í senn.
Hér má sjá myndasyrpu New York Times.




