Eitthvað skítapakk sem vinnur hjá okkur með skæting? Drögum drjúgt af lágum launum þeirra og það ætti að kenna þessu liði að halda sig á mottu.

Forstjóri Icelandair ætti að tóra eitthvað með sínar tugmilljónir króna í árslaun. En pakkið á gólfinu á ekkert gott skilið. Mynd Icelandair

Alltaf gaman að Icelandair. Fyrirtækið á enn og rekur fjölmörg hótel á farsæla Fróni og starfsfólk þeirra skal nú ekki vera með neitt múður eins og þessi frétt ber með sér.

Þar kemur fram að Icelandair dregur drjúgt og mikið af launum þeirra starfsmanna sinna sem ösnuðust til að vera félagsmenn Eflingar stéttarfélags en félagsmenn þeirra hafa skotið í stöku verkföll vegna bágra kjara að undanförnu.

Og hvað gera milljarðamæringarnir í yfirstjórn Icelandair þegar fólkið á gólfinu beitir sínum eina rétti til að fá mannsæmandi laun? Jú, refsa þeim grimmilega. Það jafnvel þó fókið hafi alls ekki tekið þátt í einu né neinu.

Þetta í ofanálag við að henda út tugum Íslendinga til að koma bókhaldinu fyrir á láglaunasvæði við Eystrasalt bendir til þess að Icelandair hugsi nú síðast um land og þjóð og fyrst um enn feitari bita fyrir stjórnendur og hluthafa.

Kannski ástæða fyrir íslensk stjórnvöld að meina flugfélaginu að nota nafn landsins sem fyrirtækjanafn….