Nú fær Fararheill á baukinn frá aðdáendum Höldurs á Íslandi en okkur finnst samt eðlilegt að koma því á framfæri að Europcar, sem Höldur (Bílaleiga Akureyrar) hefur umboð fyrir hérlendis, er talið svindla og svína á viðskiptavinum lon og don og bílaleigan Avis þykir ekki hótinu betri.

Europcar greiðir starfsmönnum aukalega ef þeir finna skemmdir á bílaleigubílum fyrirtækisins.
Hið virta breska dagblað Daily Telegraph birtir upplýsingar þess efnis að starfsfólk bílaleigunnar fái uppbót á laun sín fyrir hverja þá bifreið sem flögguð er sem skemmd þegar viðskiptavinir skila bíl af sér. Þeir fá heilar 600 krónur aukalega fyrir að finna hverja einustu skemmd á bifreið sem hefur verið í útleigu.
Einhver kann að hugsa sem svo að þetta sé til eftirbreytni. Það er jú þess virði að lágt launað starfsfólkið sé á tánum 24/7 og lof í lófa fyrir yfirstjórn Europcar að verðlauna staffið fyrir athygli.
Nema þá kannski að samkvæmt fregninni ber staffinu að tilkynna, og heimta seðla af viðskiptavinum, vegna skemmda sem svo eru verðlögð margfalt umfram raunkostnað. Daily Telegraph segir að viðskiptavinir Europcar hafi þannig verið hlunnfarnir um litla FJÓRA MILLJARÐA KRÓNA á síðustu misserum.
Ekkert skal fullyrt um hvort Höldur hefur fengið skeytið frá yfirstjórn Europcar vegna þessa eða hvort starfsfólk Höldurs fær hærri laun fyrir að koma auga á og yfirverðleggja skemmdir. En sannarlega ástæða til að hafa augun hjá sér samkvæmt þessu.
Og já, og starfsfólk bílaleigunnar Avis er sakað um sama svindlið. Þar líka fær staffið feitan aukaseðil í vasann ef skemmd er ofmetin fram úr hófi.
Gaman að þessu. Lengi lifi kapítalisminn.







