Rétt rúmar áttatíu þúsund krónur á haus alla leið frá Keflavík til Ho Chi Minh í Víetnam á allra ljúfasta tíma ársins. Ekki slæmur díll á neinu tungumáli. Jafnvel þó hafa þurfi aðeins fyrir.

Borgir Víetnam engu minna nútímalegar en aðrar borgir Asíu. Og á okkar mælikvarða er bókstaflega allt þar á tombóluverði.
Air France er þessi dægrin að bjóða Svisslendingum súperflott tilboð. Frá Basel er komist með flugfélaginu á ýmsum dagsetningum í haust og næsta vetur alla leið til Ho Chi Minh í Víetnam á sama verði og fjöldaframleiddur ljótur sófi kostar í Rúmfatalagernum.
Hver er díllinn? Jú, fram og aftur frá Basel, með stoppi í París, fyrir réttar 54 þúsund krónur per haus með handfarangur og eina tösku meðferðis.
Það verður ekkert mikið betra fyrir Svisslendinga og líklega ekki mikið betra fyrir Íslendinga líka. Það er að segja þá Íslendinga sem dreymir um dúllerí í Víetnam þegar Kári gnauðari og Vetur konungur fara að berja á fólki heimavið.

Það þarf oft að að hafa fyrir því að leita að flottum fargjöldum um heiminn. En það borgar sig undantekningarlítið alltaf 🙂
Hvers vegna Íslendinga? Jú, til Basel komumst við nefninlega í þráðbeinu flugi með easyJet og það oftar en ekki á fínum kjörum. Hjá því flugfélagi finnum við fargjöld fram og aftur allt niður í 22 þúsund krónur eða svo.
Sem þýðir auðvitað að ef þú leggur haus aðeins í bleyti eina kvöldstund eða svo, þaulskoðar lægsta verð easyJet frá Kef til Basel og svo Basel til Ho Chi Minh og sömu leið til baka, finnur þú líklega flugið báðar leiðirnar niður í áttatíu þúsund krónur eða svo.
Það er barasta súperbrilljant verð á flugi á heitar unaðsslóðir ef þú spyrð okkur hér 😉







