Að því gefnu að það takist að komast út úr Kófinu næstu mánuðina og eitt og annað færist í eðlilegra horf er óvitlaust fyrir ferðaþyrsta að skoða túra til New York með Icelandair.

Góð tilboð farin að birtast á vef Icelandair langt fram á vetur.

Flugfélagið ætlar sér stóra hluti þegar lífið færist í horf á ný samkvæmt yfirlýsingum forstjórans og kannski eru 46 þúsund króna fargjöld til New York og heim aftur hluti af þeim áætlunum.

Finna má fjölmörg flug á því verðinu langt fram á komandi vetur þegar þetta er skrifað og verður að teljast vel boðið því eðlilegt verð á flugi til og frá New York fyrir Kófið með Icelandair fékkst sjaldan undir 70 þúsund krónum eða svo.

Hér reyndar um að ræða sardínufarrýmið og ekkert meðferðis annað en lítil handtaska en tíkall til viðbótar bjargar því þokkalega.

Við hér munum fylgjast sérstaklega vel með fargjöldum flugfélaganna til og frá landinu á næstunni enda berjast öll flugfélög í bökkum og sé allt eðlilegt mun það þýða dágóð tilboð inn á milli jafnvel þó gera megi ráð fyrir að almennt hækki fargjöld umtalsvert frá því sem verið hefur undanfarin ár.

Kíktu reglulega til okkar og fáðu forskot á sæluna 🙂