Tíðindi

Iceland Express tapar öllum kærumálum

  16/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Flugfélagið Iceland Express hefur ekki unnið eitt einasta kærumál sem farþegar þess hafa höfðað og tekið hefur verið fyrir af kærunefnd Flugmálastjórnar á þessu ári. Hafa þegar fallið álit í 29 úrskurðarmálum það sem af er árs og hefur flugfélag Pálma Haraldssonar verið dæmt til greiðslu skaðabóta í öllum 24 tilfellunum sem snúa að því flugfélagi.

Tók ritstjórn Fararheill.is saman þær kvartanir sem Flugmálastjórn Íslands hefur tekið afstöðu til á árinu. Snúa kvartanirnar að lengri töfum, niðurfellingu flugs eða þjónustuleysi og hefur Iceland Express ekki unnið eitt einasta mál.

Sömu sögu er reyndar að segja af Icelandair sem einnig hefur þurft að punga út bótum eða endurgreiðslu í öllum fimm kvörtunum sem komið hafa þeirra vegna.

Vekur nokkra athygli við niðurstöður Flugmálastjórnar að í ein níu skipti er Iceland Express gert að greiða kostnað farþega í viðbót við endurgreiðslu eða bætur. Í þeim tilfellum hefur fólk þurft að bjarga sér sjálft með gistingu, mat eða akstur sökum mikilla tafa eða niðurfellingar flugs.

Þá er og athyglisvert að rök lögmanna Iceland Express í þeim málum sem þeir svara fyrir sig virðast aldrei standast skoðun. Þannig er viðkvæðið í öllum tilfellum að þeir eigi ekki að greiða kostnað vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna. Hefur Flugmálastjórn hafnað þeim rökum í öllum tilfellum.

Öllum úrskurðum Flugmálastjórnar er heimilt að kæra til innanríkisráðuneytisins. Fararheill forvitnaðist um hvort flugfélagið hefði gert það í einhverjum tilfellum en svör hafa engin verið.