Tíðindi

Flughræddir varla með Airbus

  16/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Sennilega er tiltölulega rólegt að gera hjá hönnunardeild flugvélarisans Airbus en sú deild birtir reglulega ýmsar hugmyndir sínar um þotur framtíðarinnar. Eins og sjá má á þotu ársins 2050 er hún ekki aðeins framúrstefnuleg heldur og sennilega útilokaður kostur fyrir flughrædda.

Heldur Airbus úti sérvef tileinkuðum framtíðinni í flugvélasmíði og nýjasta nýtt á þeim vef þeirra er svokallaður Concept Cabin sem á að sýna hvernig farþegaklefi Airbus árið 2050 gæti litið út.

Allt gott um það að segja enda ívið flottari en hefðbundin farþegarými samtímans. Nóg er plássið og þar eiga að vera sérstök upplyftingarpláss fyrir þá sem hafa ekki nennu til að sitja öllum stundum í flugvél.

Verra er að hönnuðirnir sjá fyrir sér að hægt verði að breyta búk vélarinnar í flugi og gera hann gegnsæjan ef flugstjórunum sýnist svo. Fyrir marga yrði það ábyggilega mikil upplifun en fyrir hina sem þjást af flughræðslu er hætt við ópum og öskrum.

Sjá nánar á vef Airbus hér.