Tíðindi

Langflestir vilja út á haustin

  17/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Enginn vafi leikur á hvenær Íslendingar kjósa helst að ferðast erlendis í frí ef marka má vefkönnun Fararheill. Haustin standa þar vel uppúr og yfir helmingur þátttakenda kýs öðru fremur að ferðast á þeim tíma.

Alls tóku 224 þátt í könnuninni en spurt var hvenær best væri að ferðast erlendis. 129 einstaklingar, 57 prósent, sögðu haustin besta tímann meðan 19 prósent töldu veturinn og vorin aftur á móti vænlegastan til ferðalaga. Einungis fimm prósent höfðu áhuga að ferðast erlendis í frí yfir sumartímann.

Stemma þessar niðurstöður við eldri kannanir Fararheill sem sýna glögglega að almennt virðast Íslendingar í æ meiri mæli kjósa að ferðast annað en á hefðbundnar sólarstrendur sem eru jú vinsælastar yfir sumarmánuðina.

Þá er bæði gáfulegt og yfirleitt ódýrara að ferðast á öðrum tímum en júní, júlí og ágúst. Gáfulegt sökum þess að ferðamannafjöldi almennt er töluvert minni í vinsælum borgum og áfangastöðum og þess vegna auðveldara að sækja söfn og drekka í sig menningu án þess að hanga lon og don í biðröðum.

Ennfremur sýna kannanir erlendis frá að verðlag á vinsælum dvalarstöðum getur verið allt að 40 prósentum dýrara á sumrin en á öðrum tímum. Fer það þó eftir því hvaða heimshluta verið er að sækja heim.

Ritstjórn Fararheill þakkar kærlega þátttökuna og bendum á að ný könnun er komin á vefinn.