Forráðamenn ferðasalans Iceland Express hafa gengið bak orða sinna gagnvart hundruðum danskra viðskiptavina félagsins samkvæmt fregnum í Danmörku.
Sem kunnugt er hafa málefni Iceland Express verið milli tanna á fólki þar í landi í kjölfar þess að félagið með litlum fyrirvara aflýsti öllum sínum flugferðum til Bandaríkjanna í október síðastliðnum. Þetta þýddi að fjölmargir danskir viðskiptavinir urðu strandaglópar og enn aðrir sem áttu bókað með ferðasalanum þurfa að leita annað.
Segir Politiken frá því að þó forráðamenn fyrirtækis Pálma Haraldssonar hafi lofað öllum dönskum farþegum er fyrir ónæði urðu vegna breytinga á leiðakerfi félagins að finna samsvarandi flug með öðrum flugfélögum er því ekki til að heilsa fyrir alla. Þannig fá þeir er bókuðu með flugfélaginu fram í tímann og hugðust fljúga á þessu ári enga slíka aðstoð. Þeir verða sjálfir að útvega sér nýjar ferðir.
Þetta gagnrýna tveir viðskiptavinir sem aðeins nýlega fengu bréf þessa efnis frá Iceland Express þrátt fyrir að rúmir þrír mánuðir séu liðnir síðan ákveðið var að slútta öllu flugi til Bandaríkjanna.
Bæði dönsk neytendasamtök og Samtök ferðaþjónustuaðila í Danmörku hafa gagnrýnt þetta háttalag en sagt vandann liggja í því að þar sem Iceland Express sé aðeins ferðaskrifstofa en ekki flugfélag gildi ekki reglur þær er eiga að vernda flugfarþega öllu jöfnu.






