Tíðindi

Fólk á tánum hjá Heimsferðum

  15/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

To find out why space in the log cannot be reused, see the log_reuse_wait_desc column in sys.databases.“

Þessi skemmtilega en óskiljanlega tilkynning blasir við þeim er reyna að bóka ferð hjá einni stærstu ferðaskrifstofu landsins, Heimsferðum, þennan daginn. Gildir þá einu hvaða vafri er notaður, allir gefa þeir sömu fínu niðurstöðuna.

Það virðist því vera að sá sem slökkti ljósin hjá Heimsferðum á föstudaginn var hafi gleymt að eyða úr ruslafötunni því ekki er mögulegt að bóka ferðir hjá ferðaskrifstofunni gegnum netið. Nema kannski ef viðkomandi er tæknifræðingur og veit af hverju bilið í loggbókinni getur ekki verið notað aftur.

Dapurt prógramm og ekki útilokað að fólk snúi sér annað með viðskipti sín.