Tíðindi

Iceland Express að setja met í óstundvísi?

  20/06/2011október 25th, 2021No Comments

Ritstjórn Fararheill.is vill ekki ábyrgjast það hundrað prósent en töluverðar líkur eru á að flugfélagið Iceland Express hafi set met í dag. Hvert einasta áætlunarflug þess til Íslands í dag, 20.júní, var langt á eftir áætlun.

Ekki er langt síðan Faraheill benti á að stundvísi Iceland Express hefði batnað töluvert og vísaði þar í opinberar tölur. Náði flugfélagið að lenda 60 prósent véla sinna á réttum tíma í apríl og maí en fyrr í vetur rétt slefaði flugfélagið 40 prósenta stundvísi.

En miðað við daginn í dag þegar 100 prósent áætlunarflugferða félagsins eru seinar var það að líkindum hrein tilviljun.

Sætir furðu hvað þessu flugfélagi gengur illa að koma viðskiptavinum sínum milli staða á uppgefnum tíma og eins og sést á meðfylgjandi töflu er ekki um neinar smátafir að ræða heldur nokkrar klukkustundir í öllum tilfellum nema einu.

Hér að neðan er komutímatafla úr Leifsstöð í dag. Innan sviga hefur ritstjórn sett tafirnar.

20. jún. 5W504 London Gatwick 23:50 01:39 (1.49 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W904 Copenhagen 00:30 01:37 (1.07 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W486 Winnipeg Intl 07:10 09:42 Lent 09:57 (2.47 klst. á eftir áætlun)
20. jún. 5W414 Newark Intl 07:20 09:12 (1.52 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W502 London Gatwick 16:20 18:18 Lent 18:34 (2.14 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W542 Edinburgh Int 16:20 16:44 Lent 16:50 (30 mín á eftir áætlun)
20. jún. 5W902 Copenhagen 16:30 18:46 Lent 18:58 (2.28 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W276 Warsaw Int 16:50 19:03 Lent 19:17 (2.27 klst á eftir áætlun)
20. jún. 5W362 GothenburgOslo 17:00 19:44 (2.44 klst á eftir áætlun)

Þess má geta að þó á bloggi Iceland Express sé óskað sérstaklega eftir gagnrýni ef fólk sé óánægt hefur upplýsingafulltrúi flugfélagsins aldrei svarað ítrekuðum fyrirspurnum Fararheill.