Tíðindi

Egill flýgur ekki með Iceland Express

  21/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Þjóðfélagsrýnirinn Egill Helgason segist ekki hafa treyst sér til að ferðast með flugfélaginu Iceland Express um langt skeið.

Tiltekur Egill þar sérstaklega að flugfélagið beri ekki nokkra virðingu fyrir farþegum sínum. Hlutur sem Fararheill.is hefur að auki haldið fram í langan tíma og sést slíkt best á hrikalegri óstundvísi flugfélagsins sem Fararheill hefur fjallað ítrekað um.

Síðast í gær, 20.júní, voru öll áætlunarflug félagsins hingað til lands langt á eftir áætlun.

Bloggar Egill á vefmiðlinum Eyjunni og skrifar þar:

Það er langt síðan ég hætti að treysta mér til að fljúga með Iceland Express.

Það er ekki hægt að skipta við flugfélag sem ber enga virðingu fyrir farþegum sínum. Er hérumbil aldrei á réttum tíma – aðstoðar þá lítt eða ekki þegar flugvélum seinkar og lætur tæplega vita.

Fyrir þá sem þurfa að ná tengiflugi eða mæta á fundi á ákveðnum tíma er ómögulegt að fljúga með Iceland Express.

Nú virðist reksturinn vera orðinn að hreinum skrípaleik. Vélar flugfélagsins eru hérumbil alltaf of seinar. Og ástandið er slíkt að þjónustufyrirtæki vilja ekki selja flugfélaginu mat í vélarnar.

Þetta er sorglegt – því samkeppni í flugsamgöngum er nauðsynleg.