Það er ekki aðeins hér á Fróni sem flugfarþegar eru almennt ósáttari við flugfélög. Vestur í Bandaríkjunum minnkar almennt ánægja með flugfélög og sérstaklega tiltekin aukagjöld þau er flest flugfélögin leggja á ferðalanga.
Hefur USA Today komið sér upp sérstakri vísitölu sem mælir ánægjustig ferðalanga bæði gagnvart flugfélögum þar í landi en einnig ánægjustig gagnvart hótelum og gistihúsum.
Í ljós kemur að óánægjan eykst hjá farþegum flugfélaga en eykst hjá gestum hótela milli áranna 2010 og 2011.
Er það Delta Airlines sem fær verstu einkunn stóru flugfélaganna vestanhafs en það er einmitt Delta sem hóf áætlunarflug til Íslands fyrr í þessum mánuði. Southwest Airlines aftur á móti þykir bera af en það er eitt af örfáum flugfélögum heims sem ekki tekur aukagjald fyrir farangur.
Hótelmegin stendur Hilton hótelkeðjan uppi sem sigurvegari þriðja árið í röð og í ljós kemur einnig að almennt er ánægjan meiri með dýr hótel en ódýr.






