Hér í árdaga ferðaþjónustu til Spánar þótti ekki margt stórkostlegra fyrir yngra fólkið en djamma og djúsa á Ibiza enda eyjan sú einn fyrsti staðurinn í landinu sem varð fórnarlamb fjöldatúrisma.
Töluvert skólp hefur runnið til sjávar síðan þetta var en þó Ibiza hafi aldrei náð samsvarandi vinsældum hérlendis á nýjan leik er sagan önnur erlendis. Ibiza er enn þann dag í dag langvinsælasti djammstaður ungra Breta og Þjóðverja og þekkt þeirra á meðal sem Djammhöfuðborg heims eða World Party Capital. Þar er að finna eina sextán stóra næturklúbba í viðbót við ógrynni hefðbundinna bara og knæpa
Aðeins ein ferðaskrifa hérlendis býður upp á ferðir til Ibiza. Það er Trans Atlantic á Akureyri en í samtali við Fararheill segir forsvarsmaður hennar að fella hafi þurft niður aðra af þeim tveimur ferðum sem fyrirhugaðar voru nú í júlí.
Það er ákveðin synd því hafi fólk gaman af urrandi stuði fram eftir öllum nóttum er Ibiza sannarlega staðurinn. Það má meðal annars sjá á þessu myndbandi frá Amnesia klúbbnum.







